Íþróttaskóli / Fjölgreinaskóli

Íþróttaskóli ÍR fyrir 3-6 ára börn (vetur 2010-2011)

Íþróttaskólinn er í boði einu sinni í viku frá september til maí. Skólinn hefur aðsetur í ÍR-heimilinu við Skógarsel 12. Best er að börnin séu berfætt og í þægilegum bol og buxum, ekki er þörf á sérstökum íþróttafatnaði. 3-4 ára börn eru saman í hóp og 5-6 ára saman. Yngstu börnin eru þau sem eru fædd árið 2007 og þau elstu eru börn úr 1. árgangi skólanna.
Í Íþróttaskólanum eru leystar ýmsar þrautir þar sem börnin reyna á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu, líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa og í leikfimi sem þessari reynir á þau öll.

Sigríður Ósk Fanndal Íþróttafræðingur sér um kennsluna ásamt aðstoðarmanni.

3-4 ára (´06-´07) eru á mánudögum kl.16:20-17:00 eða laugardögum kl.09:30-10:10.
5-6 ára (´04-´05) eru á þriðjudögum kl.16:30-17:10. 

Íþróttaskólinn hefst 6.september.

 

Verð fyrir áramót: 15 vikur 1 sinni í viku kostar 8.000 kr.
Verð eftir áramót: 18 vikur 1 sinni í viku kosta 9.500 kr.


Nánari upplýsingar veitir Sigrún Gréta Íþróttafulltrúi ÍR í síma: , netfang: .




Fjölgreinaskóli ÍR í grunnskólum Breiðholts fyrir 6 og 7 ára börn (vorönn 2011)

Fjölgreinaskóli ÍR er starfræktur í grunnskólum Breiðholts og er fyrir öll börn í 1. og 2. bekk. Reynt er að hafa skólann 1 x í viku að skóladegi loknum og er börnunum að kostnaðarlausu. Kennslan er í höndum þjálfara ÍR.

Þau börn sem EKKI eru á Frístundaheimili eftir skóla þurfa foreldrar að skrá sérstaklega á skrifstofu ÍR í síma og um leið eru þau börn á ábyrgð foreldra á leið sinni til og frá íþróttahúsi.

 

Tímarnir eru sem hér segir:


Breiðholtsskóli:

1.bekkur (1.b.1./2.) föstudaga kl.15:00-15:50 (Elvar)
2.bekkkur (2.b.1. og 2.) fimmtudaga kl.15:30-16:20 (Elvar)

 

Fellaskóli:
1.bekkur aðra hverja viku á móti 2.bekk.  fimmtudaga kl.15:10-16:00 (Níels)


Seljaskóli:
1.bekkur (1.b.1.) mánudaga kl.14:30-15:20 (Elvar)

1.bekkur (1.b.2.) þriðjudaga kl. 14:30-15:20 (Elvar)

2.bekkur (2.b.1. og 2.) fimmtudaga kl.13:50-14:30 (Elvar og Níels)

 

Ölduselsskóli:
1.bekkur (1.b.1.) miðvikudaga kl.14:15-14:55 (Elvar)

1.bekkur (1.b.2.) miðvikudaga kl.14:55-15:35 (Elvar)

2.bekkur (2.b.1. og 2.) föstudaga kl.14:15-14:55 (Níels)


Nánari upplýsingar veitir Sigrún Gréta Íþróttafulltrúi ÍR í síma: , netfang: .