Samstarf Landsbankans og ÍR endurnýjað
Íþróttafélag Reykjavíkur og Landsbankinn endurnýjuðu í janúar 2011 samstarf sitt til tveggja ára. Bankinn verður áfram aðalbakhjarl allra deilda ÍR og útibúið í Mjódd mun standa þétt að baki félagsmönnum í ÍR.
„Við erum afar stolt af stuðningi okkar við ÍR,“ segir Friðgeir Magni Baldursson, útibússtjóri Landsbankans í Mjódd. „Útibúið í Mjódd hefur allt frá stofnun verið aðalstyrktaraðili ÍR, auk ýmissa annarra samfélagsverkefna. Fyrr í vetur afsalaði Landsbankinn sér auglýsingum á búningum félagsins og bauð liðinu að velja sér í staðinn gott málefni á búningana. ÍR valdi Hjartaheill og merki félagsins prýðir því búninga félagsins næsta ár.“ Þetta er gert í takt við nýja stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög undir yfirskriftinni Samfélag í nýjan búning. Markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við íþróttir og mannúðarmál.

Stofnaður hefur verið áheitasjóður fyrir Hjartaheill og greiðir bankinn ákveðna upphæð fyrir hvern sigur meistaraflokka ÍR karla og kvenna á Íslandsmótum. Öðrum fyrirtækjum og einstaklingum er frjálst að heita á liðið sitt og leggja þannig góðu málefni lið. Í tilefni af stofnun áheitasjóðs fyrir Hjartaheill styrkti Landsbankinn félagið um hálfa milljón króna í október sl.